|
05.03.2011 15:45:44 / goodlive
Mikið líður tíminn hratt. Komin 5. mars og 8 vikur búnar af skólanum. 5 vikur eftir af skólanum. 9 hópaverkefni eftir 1 heimapróf og svo 3 lokapróf.
Ég er orðinn frekar þreitt og lúin, en samt er þetta svo gaman og það er auðvitað ástæðan fyrir því að tíminn líður svona hratt.
Annars er allt bara með því sama, krakkarnir og karlinn hressir bara.
Þula er að lóða í fyrsta sinn 8 mánaða en hún er búin að vera bara nokkuð geðgóð, engir ljótir strákar að eltast við hana sem betur fer.
jæja hef víst ekkert að segja af viti
»
09.02.2011 17:17:20 / goodlive
Ég á skap mikið barn eins og svo margir aðrir. Dóttir mín 5 ára stjórnar heimilinu og heldur því stundum í ógnargreipum. Mér finnst samt svo ljótt að segja svona því ég veit að það eru margir þúsundfallt verr settir en við.
Svona til að koma í veg fyrir einhvern kjaftagang og vafa þá elska ég litla stelpuskottið mitt út af lífinu og hún er alveg yndisleg þegar sá gallinn er á henni sem er nú sem betur fer oftast. Hún dundar sér og leikur. Hún á vini og er góð við þá.
En svo gerist það að hún hefur ekki stjórn á skapinu og þá tiplum við öll á tánum og reynum að gera sem minst til þess að stiggja ekki stelpuskottið. Fjörið byrjar yfirleitt á mornana fötin sem hún á að fara í meiða hér og meiða þar. Ef svo óheppilega vill til að mamman hafi ekki fengið nægan svefn eða sé illa upplögð eða hreinlega sé bara ekki í stuði til þess að segja æji elskan mín við skulum finna ný föt til þess að fara í endar þetta með grenjum og látum sem geta staðið í góðan tíma. Og i stað þess að hin börnin séu "rekin" áfram í morgunverkunum með bros á vör eru þau rekin áfram með nettri geðvonsku. Svo er komið að því að greiða hárið úff þá er nú öskrað enn meira og argað. Og allir fara út í daginn með geðvonskuna í farteskinu. Geðvonska er ekki gott nesti út í amstur dagsins. Ég hef þó prufað að sleppa því að greiða hár þar sem mér finnst það ekki brýna nauðsyn og leiðist að láta öskra á mig eins og ég njóti þess að meiða stelpuskottið ( reyndar er eldri dóttir mín líka þannig svo ég fæ tvöfalda ánægju) en þá var ég tekin í tiltal á leikskólanum hvað krakkin var illa til fara  Jæja svo líður dagurinn með öllu sínu amstri og manni hlakkar til þess að komast heim og hitta fallegu góðu börnin sín, því miður gleymir maður hegðun morgunsins fljótt. Ég fer í leikskólan og sæki stelpuskottið mitt sem er yfirleitt glöð að sjá mig en þarf þó alltaf aðeins að perla meira en vill hafa mig hjá sér. Við förum í fataklefan og þá er eins og hún setji upp leiðindar gallan og byrjar að spyrja hvort við getum farið hingað eða þangað og þegar ég segi nei byrjar fjörið á nýjan leik. Þegar heim er komið vill hún helst alltaf gera eitthvað sem er örugglega ekki boði. Ef einhver annar er að horfa á sjónvarpið verður hún að fá að gera það og á eitthvað allt annað en þegar er verið að horfa á sem endar með látum og oftast með því að sá sem er að horfa gefst upp og lætur henni sjónvarpið eftir. Allir tippla á tánum til þess að halda stelpuskottinu góðu. Um18 er byrjað að spyrja hvað er í matinn? Það er alveg sama hvað það er henni líkar það aldrei ja nema ef það er pizza, skyr eða súrmjólk. Þegar ég segi henni hvað sé í matin tekur við endalaus pirringur yfir valinu og suð um að fá brauð núna strax. Í kvöldmatnum er svo ekkert borðað enda borðar hún ekki svona. Nú er komið að háttartíma. Eina sem er ekki vandamál við háttartíman er að busta tennurnar. Þegar hún loksins sofnar sem er yfirleitt seint og síðir er maður svo gjörsamlega búin á því að eina sem maður áorkar er að setjast í sófan og kíkja á facebook. En þá á ég eftir að læra og stessið eykst daginn eftir.
Ég er búin að fara með hana til sérfræðings sem sagði okkur að hún væri flott og vel heilbrigð. En vandinn er samt enn til staðar.
Ég er svo þreitt og með uppsafnaðan pirring að ég er hrædd um að ég muni springa einn daginn. En nei nú verð ég að taka á honum stóra mínum og láta stelpuskottið að það erum við foreldrarnir sem ráðum en ekki hún. Já ég á erfitt og leiðinlegt verkefni fyrir höndum.
knús til ykkar.
»
30.12.2010 14:26:29 / goodlive
og þá er tímabært að hugsa til baka. Hvað gerðist markvert á þessu herrans ári 2010 og þá meina ég hjá mér og minni fjölskyldu en ekki samfélaginu í heild. Ég hélt átakinu mínu áfram fram á vorið var ánægð með mig. Arnar Leó var fermndur í Fríkikjunni í Hafnarfirði frábær dagur í alla staði. Ég kláraði skólan og stóð mig bara nokkuð vel að mér finnst auðvitað alltaf hægt að gera betur ekki spurning en er bara sátt. Tinna kláraði 3 bekk og Arnar kláraði 8 bekk. Sumarið fór í að vinna, ég var að vinna á sambýli fyrir fatlað og þroskahamlað fólk og var það virkilega gefandi og skemmtilegt. Við ferðuðumst líka soltið fórum meðal annars í Húsafell, Skaftafell og sumarbústað. Baddi fór með krakkana á ættarmót og í bústað. En annars gerðum við meira bara innan bæjar. Skólinn byrjaði svo aftur í ágúst lok og rétt áður en hann byrjaði fengum við okkur labrador hvolpin Þulu hún er algjört yndi. Það var rosalega mikið að gera í skólanum á haustönninni og var ég eiginlega bara sveitt allan tíman en hún var líka skemmtileg og lærdómsrík. lítið sem ekkert merkilegt gerðist á þessum tíma annað en að læra. Ja ég reyndar stóð mig ekki í átakinu og er núna svo statt að ég þori ekki á viktina en stefni á að fara á nýju ári einhvern tíman haha. ég er núna búin með 1/2 BA ´próf í félagsráðgjöf og er alveg hætt að hugsa um að ég geti ekki eða kunni ekki enda alveg búin að sanna fyrir sjálfri mér að ég er engin vittleysingur eins og ég hélt alltaf 
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömlu og góðu árin sem eru að baki.
»
22.07.2010 00:35:09 / goodlive
Ég er búin að vera í vaktarfríi síðustu þrjá daga úr vinnunni og notið þeirra í botn. Á mánudaginn fór ég í sund með mömmu og svo í bæinn með karlinum við röltum okkur bara tvö um og settumst á tabasko og fengum okkur nachios bara næs. Okkur var svo boðið í mat til pabba og mömmu og fengum við ný veidda bleikju með hnetusmjöri namm namm namm. Á þriðjudaginn fórum aftur í Reykjavík lögðum bílnum hjá N1 og fórum í hljómskálagarðinn gáfum öndunum brauð og röltum svo í bæinn, settumst á Kornið og fengum okkur að borða og svo röltum við meira. Fórum á Austurvöll og þar voru einhverjir " krakkar" að spila og syngja man bara ekki hvað hljómsveitin heitir silfur eitthvað ferlega flott hjá þeim og við settumst þar góða stund og hlustuðum og fylgdumst með mannlífinu. Lalli Jons var á austurvelli útitekin og "sætur" ásamt vinum sínum og gekk flaskan manna á milli og var ólíklegasta fólk að fá sér sopa ojjjjj. Maður í Jakkafötum bauð Lalla lyfseðilsskild lyf en ég gat ekki betur séð en hann hefði afþakkað gott boð. Já það er gaman að fylgjast með mannlífinu. Um kvöldið fór ég út að borða á Austur með Steinu afmælis systur minni og Hildi frænku. við fegnum okkur gegjað anda sallat og súkkulaði köku í eftirrétt. Fórum svo á hvítu perluna á eftir og þar var feikna stuð. Tveir strákar með gítar að syngja bland af íslenskri tónlist og enskri og við spjölluðum og hlustuðum og dönsðum smá. Fórum ekki heim fyrr en lokaði um 1  Í morgun tókum við innan bæjar rölt, fórum með bílinn á verkstæði í hinum enda Hafnarfjarðar og löbbuðum heim, með viðkomu hjá ömmu og afa, Hörðuvallar leiksskóla Tjörninni og kirkjugarðinum. Láum svo bara á pallinum það sem eftir lifði dags. frekar næs bara en á morgun er vinna en svo á ég helgar frí 
»
11.05.2010 23:32:01 / goodlive
Þá er vor prófunum loks lokið og fyrsta námsárinu mínu í Hí einnig lokið, spáíð í því ég er búin með 1 ár. Ég er reyndar alveg hætt að efast um getu mína í námi ja reyndar kannski rétt fyrir próf, fæ ég nett áfall en hver gerir það ekki. Ég er komin með eina einkunn af 5 og náði ég aðferðafræðinni og svo veit ég að ég hef staðist annað fag en hitt er enn óvissa. Læt heyra í mér þegar það er komið.
Ég eyddi fyrsta frídeginum í að´þrífa húsið og er stefnan tekin á að gera ekkert á morgun nema þá kannski að djamma.
»
04.05.2010 22:49:37 / goodlive
Núna eru prófin hálfnuð á tvö eftir og ég er svo búin á því að ég bara get ekki meir, hvað gera nemar þá ? einhver hugmynd. Ég á sex daga eftir á þessari próftörn og er annað prófið á fimmtudag og síðasta á mánudag.
Ég er svo komin með vinnu í sumar, er að fara að vinna á sambýli hér í Hafnarfirði. Vona að vaktirnar séu góðar og ég geti eitthvað verið í fríi með famelíunni en annars hætti ég 10 ágúst og fer þá í 10 daga frí með þeim.
Finnst að námsmenn með börn eigi að fá greitt fyrir að vera heima með þeim, maður sinnir þessum greyjum ekkert allan veturinn og svo ekkert á sumrin.
Mér finnst reyndar að fólkið sem er búið að vera á atvinnuleysisbótum í heilt ár eigi að ganga fyrir í sumarstörfin og nemar þá að fá atvinnuleysisbætur ef ekki er nóg störf handa öllum, það er nefninlega ekkert gott að vera svona lengi heima að gera ekkert nema að leita að starfi og fá höfnun eftir höfnun. Þá er nú betra að vinna eitthvað þó það hæfi ekki mentun, en það getur fólki smá búst inn í framtíðina og bjargar algjörlega geðheilsu þessa fólks. Ég hinns vegar sem hef varla langt frá mér bækurnar í allan vetur, myndi alveg þyggja að geta pústað aðeins og hugsa um eins og ég sagði áðan fallegu börnin mín sem eru farin að vera erfið í umgengni vegna " vanrækslu" móðurinnar ja nema ég sé bara orðin svo þreitt að ég orki bara ekki eðlilega hegðun barna 
Þetta nöldur var í boði úrvilda Háskólanema með 3 börn
»
09.04.2010 21:40:30 / goodlive
Ég er komin með vinnu í sumar og þarf því ekki að svelta ég heppinn. Það eru nú ekki allir vinir mínir í skólanum svona heppnir. Ég er að fara að vinna á sambýli hér í Hafnarfirði og leggst þetta bara vel í mig, ég er full af bjartsýni að ég eyðinlegi ekki líf barnana minna þó ég geti lítið sem ekkert verið með þeim í sumar.
Æji satt best að segja langar mig eiginlega bara að grenja, ég er ekki viss um það hvernig ég höndla það að famelían fari saman í sumarfrí á meðan ég er heima að vinna, ég er bara of háð fjölskyldunni minni til þess, en svona þarf þetta bara að vera því ekki geta þau hangið hér heima í allt sumar.
Vonandi get ég nú farið eitthvað með þeim þegar ég er í vaktar fríi.
hvað ætli þið að gera í sumar ?
»
09.04.2010 21:33:59 / goodlive
Ég reyndi mitt besta í að slaka á um páskana, skrapp í bústað til þess að skella börnunum mínum á tengdó en það gekk víst ekki vel haha. Stelpurnar vöknuðu báða dagana í bústað klukkan 8 ætti að vera bannað með lögum að vakna svona snemma. Við höfðum það bara að öðruleiti bara vel. Fórum í gos bíltúr keyrðum inn í Fljótshlíð en svo þorði ég ekki yfir ánna stelpunum til mikilla leiðinda en ég meina ef mamman er ekki skynsöm hver er það þá ?
Við vorum í bústaðnum á páskadagsmorgun og ég faldi páskaegginn þeirra og var mikið fjör að leita að þeim. Fórum svo heim fyrir Liverpool leikinn og grilluðum læri. Annan í páskum vorum við bara heima ferlega kósý bara.
Núna er fríið búið og ég hvíldi mig einhvern vegin ekki neitt og er því bara þreitt og pirruð og farið að stittast í prófinn og ég einhvern vegin ekki tilbúin, á eftir að læra mjög mikið til þess að ná pottþétt öllu. Núna er ég ekki beint veik en drullu slöpp, magapest, hausverkum og slappleiki. Aumingja ég.
»
24.03.2010 23:48:53 / goodlive
ég er búin að vera nokkuð dugleg í átakinu og er búin að missa tæp 19 kg ég ótrúlega stolt af mér.
Ég er líka búin að vera dugleg í skólanum og það er sko nóg að gera hjá mér. en ég er alveg að detta inn í páska frí en fyrir þann tíma þarf ég að klára 1 próf og tvö verkefni. og svo svona auka 1 matarklúbb og 2 afmæli og þetta allt fyrir páskafrí haha geri aðrir betur. Stefni á að slaka pínu á frá skólanum og vera í fríi.
»
11.02.2010 07:48:31 / goodlive
Jæja fór í viktun í gær og misti 800 gr þessa vikuna í heildina á þessu ári eru farin 5 kg og í heildina eru farin 16 kg frá því í október. Ég er núna farin að fá hrós um hvað ég lít vel út og hvað ég hef grenst mikið  ekki leiðinlegt sko. Ég er farin að passa í föt í eðlilegri fatastærð og það er gegjað.
»
31.01.2010 21:29:20 / goodlive
Ég hef verið að notast við Herbalife síðan í desember og líkar það mjög vel. ég er að taka alltaf 1 shake á mornana og einn í hádeginu. Síðan fæ ég mér hrökkkex eða ávöxt í kaffinu og svo borða ég kvöldmat og hefur verið að ganga svakalega vel.
Ég er síðan farin að selja herbalife enda góð vara hér á ferð sem hefur hjálpað mér mikið þó svo að árangur minn sé mest megnis mér að þakka ég sætti púkan og ég og allri hinir púkarnir sem ég er með eru sammála um að við ætlum að grennast já þar liggur galdurinn.
En ef þið hafið áhuga á að kaupa herbalife veriði í sambandi. Gott soja prótein, góð svona milli mála stikki með próteini og svo þetta nýja meal bar sem er með næringargildi heillar máltíðar en samt bara 207 kal en betra en venjulegt súkkulaði eða það finnst mér. Fékk mér þannig í morgun og mjólk með nammmm...
»
31.01.2010 21:23:46 / goodlive
Ég fór auðvitað í viktun í síðustu viku. Misti 700 gr nokkuð sátt við það þó það sé 1900 gr minna en vikuna áður.
Samtals á þessu ári farin 3.3 kg vííí.
»
20.01.2010 22:33:29 / goodlive
Ég fór í fyrstu viktun á nýju ári ja eða sko aðra. en önnur í niðurtalningu og ég fór 2,6 kg niður vúúhúúú
»
12.01.2010 23:06:57 / goodlive
Jæja nú er jólafríið að líða undir lok. byrja í skólanum á föstudaginn. Þessi önn verðsur áhugaverð í náminu og ég ætla að standa mig jafnvel og fyrir áramót jafnvel örlítið betur.
Ég er búin að hafa það svakalega gott, og bara slappa af hitti vini og slappa meira af. Lífið er yndislegt.
Ég hef staðið mig ángætlega varðandi viktina en fór í gæsapartý 2 jan og drakk vín og ég bætti á mig 2 kg sem ég hef átt erfitt með að ná af mér aftur. og á ég um 1 kg eftir af því ferlega leiðinlegt en ég samt búin að vera nokkuð dugleg að mér finnst.
Ég er að fara í brauðkaup á laugardaginn og ætlaði ég alltaf að vera 2 kg léttari en ég var á gamlárs en ekki 1 kg þyngri en svona er lífið stundum.
Þyngdar áskoruninn byrjar svo á morgun aftur og nú verður tekið á því.
»
06.01.2010 12:13:42 / goodlive
Þá eru loksins allar einkunnir komnar í skil og ég STÓÐST allt. Einkunnirnar eru kannski ekki svaka glans einkunnir en ég fékk 6,5 í félagsfræði 6,5 í sálfræði 7 í vinnulagi 7,5 í félagsráðgjöf 8 í áfengi og vímuvörnum.
og er því með meðaleinkun upp á 7,1 þar að vera með 7,25 í lok 3 árs en það munar ekki miklu.
Ég er ótrúlega stolt af mér og verð ég að segja að ég hefði sko aldrei trúað að ég myndi ná öllum prófunum enda hef ég alltaf trúað því að ég sé ógeðslega heimsk og geti ekki lært.
Ég verð nú að fara að breita þessari hugsun eitthvað.
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|