One's you get fat it is hard to go back
Tenglar
RSS tengill
29.02.2008 10:45:14 / goodlive

Föstudagur

Ég get svo svarið það, það er bara alltaf föstudagur það er greynilegt að mér leiðist ekki þessa dagana því annars myndi tímin ekki líða svona hratt.
Planið um helgina er baka pizzu, horfa á Bubba, á morgun ætlum við fjölskyldan að leggja land undir fót og heimsækja Evu, Einar og fjölskyldu og gefur þetta mér afsökun til að fara og kaupa eitthvað fallegt á guttan vá hvað ég er heppinn. Svo á að slaka bara á. Vona samt að við förum í gönguferð eins og síðustu helgi og vona að mamma og pabbi verði heima svo hægt verði að heimsækja þau. hef ekki séð þau í 3 vikur.
Já og ég ætla ekki að borða neitt nammi !!

Hvað ætli þið að gera um helgina ?

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 16:43:53 / goodlive

Ég á duglega stelpu

Fór með skottuna mína í foreldraviðtal í dag  og kennarinn var alveg rosalega ánægð með hana. Hún er orðin vel læs fékk 2,1 og viðmiðið er 2 í vor svo hún er í góðum gír þar. Hún fer líka alltaf eftir fyrir mælum og er félagslega mjög sterk. Kennaraninn sagðist hafa spurt stelpurnar við hvern þær vildu helst leika og var Tinna mín allstaðar efst á blaði svo hún er ekki í vandræðum með þetta og er allra æji hún er svo mikið krútt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 13:38:51 / goodlive

Viktin

Jæja þá er fyrsta vikan búin og ég stóð mig ekki nóg vel skamm Sirrý
Ég borðaði Nammi á föstudag smá og á laugardag og Sunnudag og maður grennist nú ekki á því það er víst ábyggilegt
en loka tölur eftir vikuna voru - 1 kg það er betra en 1 kg upp :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 13:29:27 / goodlive

Helgin

Þá er enn ein helgin búin.
Á laugardaginn fór ég með Arnari á bekkjahitting það var farið í keilu og svo í bíó. Stelpurnar réðu myndinni og var farið á Step up 2 svo ég dreif mig með langaði að sjá hana. Ferlega fín en fyrri myndinn betri samt. Baddi fór með stelpurnar til mömmu sinnar og pabba og ætlaði Tinna að gista. Um 7 leitið hringir hún og fer að hágráta og biður um að fá að koma heim ég auðvitað sagðist koma og ná í hana og myndi hringja aftur þegar ég væri búin að borða. Ég fór svo að sækja hana. Amman var skiljanlega soltið fúl en ég vill að stelpan treysti mér og þá sæki ég hana þegar hún biður um það alla vega þar sem ég var ekki að gera neitt. Við horfðum svo saman á laugardögslöginn og vorum sátt við úrslitinn.
Á sunnudaginn fórum við í göngu og gengum hringin í kringum Vífilstaðarvatn og vorum 1 tíma og 20 mín með stoppum þar sem krakkarnir hvíldu sig og rendu sér bara gaman og mér leið svo vel á eftir. Fórum heim að borða og svo í kringluna keypti skó á karlinn og eftir það fórum við heim ( mamma var ekki heima) og hvíldum okkur. Ég eldaði svo núður með kjúkling bara gott.
Sem sagt ferlega góð helgi.
Nóg að gera i vikunni námskeið, uppeldisnámskeið, vinna, fundur, foreldraviðtöl og hittingur.

kveðja Sirrý

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 18:53:36 / goodlive

Allt og ekkert

Ég hef ekkert að segja enda gerist ekkert hjá þér þessa dagana. Ég er á námsskeiði á mornana það er rosalega gaman og er farin að vakna löngun hjá mér í að fara í nám en ég treysti mér samt ekki til þess og ég er ekki alveg ákveðinn hvað ég vill verða þegar ég verð stór. Mér finnst rosalega gaman að spá í hegðun manna og af hverju fólk gerir hlutina svona en ekki hinn eiginn og allt það. Það er spurning hvort þetta sé atfferlisfræðingur eða mannfræðingur eða hvað ?? á ég kannski bara að fá vinnu hjá gallúb ?? Ef ykkur dettur eitthvað í hug endilega látið mig vita. Var bent á að fara í kennaran eða þrjosaþjálfan jafn vel sem skref upp á við ég veit ekki af hverju það er alltaf bent á kennarann er það svona einfallt nám eða ?? Ég kom reyndar út sem góður kennari úr einhverju testi sem ég gerði en þolinmæði kom þar hvergi nærri 8|

Nú er ég byrjuð eina ferðina enn í smá átaki humm vona það endist lengur en viku ég leit í spegillinn og hugsaði ojjj bara hvað þú ert feit og aumingja maðurinn þinn að þurfa að sofa hjá þér humm jamm ég veit passar ekki við námskeiðið sem ég er búin að vera í bannað að rífa sig niður en hei þetta er staðreynt og ég er of feit og verð að gera eitthvað í því. Ég er nú búin að prufa eitt og annað og nú áhvað ég að prufa Herbalife mér tókst að fara út að ganga 2 sínnum í vikunni og stóðst þar með markmið sem ég setti mér en mér hefur gengið ílla að standast það v/ námskeiðsins en auðvitað er það bara léleg afsökunn. 1,3 kg fóru í vikunni og er ég bara sátt en sko reyndar byrjaði ég bara á þriðjudaginn svo 1,3 kg fóru á 4 dögum. Ætla að setja inn tölur öðru hverju.

En þá er komin helgi eina ferðina enn ekki skritið að maður sé að verða krumpaður :$ tímin líður allt of hratt úff ég held það séu bara alltaf föstudagar. Helginn verður róleg á þessum bæ. Arnar er að fara með bekknum sínum í keilu og bíó og ætla ég að fylgja með.
Á sunnudaginn er ekkert planað og kannski fer ég með Tinnu á Gosa.

Heiðrún vinkona mín og Óli maðurinn hennar voru að eignast litla stelpu og bíð ég spennt við tölvuna eftir myndum. Til hamingju með hana.

Fyrirsögninn að þessari færslu var ekkert að segja en humm það er ekki alveg þannig

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 09:54:31 / goodlive

Allir slappir

Hér eru flestir soltið slappir. Baddi og Elísa eru lasin með hita ég hélt að Elísa Anna væri á batavegi var bara með 37,5 í gær en hún var með háan hita í nótt og létt ílla. Baddi er líka með einhvern hita. Ég var með nokkrar kommur í gær en í dag hentar það mér ekki að vera lasin svo mér er batnað hehe Ég var með svo mikin hausverk í gær að ég hélt að hausin á mér myndi klofna í sundur en hann hélt sem betur fer blessaður 8|.
Ég dag er mér boðið í hádegisboð til Ingunnar vinkonu, Hjördís er í bænum og alltaf gaman að hitta hana og hinar stelpurnar. Við ætlum að hittast með börnum svo ég hugsa að ég taki Tinnu með mér skilji hin eftir það er þessa veiku og 12 ára gelgjuna.
Tinna á svo von á næturgesti í kvöld og er mjög spennt yfir því.

Vinkona mín á von á barni og er búið að hreifa við belgnum og óska ég henni  og manninum hennar alls þess besta og vonandi náuðu þau að hrista hana í gang :p

Hér er annars bara allt í rólegheitunum eins og oftast bara. Saumaklubbur á mánudag, uppeldisnámskeið sem hefur lagað ástandið hér heima verulega á þriðjudaginn, frá á miðvikudaginn og svo vinna á fimmtudag og þá er aftur komin helgi vá ég verð orðin 50 ára áður en ég veit af tíminn líður svo hratt.

Pabbi á afmæli í dag innilega til hamingju með daginn njótu hans vel og láttu mömmu dekra við þig.

Hafið það gott um helgina.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 16:13:58 / goodlive

Ég er á lífi

Ég er lifandi mér finnst ég rosalega heppin og mér finnst ég heppin að gera mér grein fyrir því að ég sé það. Það eru ekki allir svona heppnir.

Það er akkurat ekkert um að vera í mínu lífi núna hef ekkert farið og ekkert gert en það er nú stundum þannig.

Það er þorrablót í vinnunni hjá manninum á morgun og mökum boðið en bóndinn ætlar ekki að fara því miður tek ég því sem svo að það sé af því að mér er boðið ég veit að þessi hugsunar háttur er ekki alveg í lagi en svona er það samt. En hvort það sé bara af því að mér er boðið eða hvort það er af því að fyrst mér er boðið þá þarf að redda pössun og ferlið verður allt flóknara.

Ég væri reyndar alveg til í að fá pössun og fara eitthvað út en væri þá meira til í að fara á t.d Carpe diem eða perluna að borða og svo langar mig soltið á ballið í Kaplakrika á morgun.

Arnar er að keppa á morgun og laugardag og ef þeir standa sig vel þá er mæting á sunnudaginn líka sem sagt nóg að gera um helgina.

Jæja best að setja í þvottavél og laga aðeins til er að fara að vinna í kvöld og svo er leikskólinn lokaður á morgun sökum manneklu bara fjör.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 44847
Myndasöfn