|
29.03.2008 23:01:54 / goodlive
Það að hafa gefið börnunum mínum ipot í jólagjöf var bara snild ég hef hertekið annað þeirra til að hafa í ræktina og þegar ég fer út að ganga. Í kvöld átti ég eftir að ganga frá og setja á kökur er að fara að vinna hjá pabba í fyrramálið svo það var betra að vera búin að því svo ég setti stelpurnar í rúmið fór niður með ipottin og setti Mika í og hækkaði vel vá hvað það var gaman að vinna ég söng og dansaði og þegar eldhúsið var næstum orðið tannduhreint og ég að hlusta á big girls you are beautiful kom sonur minn niður og sagði æji mamma getur þú ekki farið að hætta að syngja þú ert að gera útaf við okkur pabba hehe ég sagðist verða að halda áfram til að geta klárað en lofaði að syngja soltið lægra  Held að manninum mínum finnist þetta ekki eins mikil snildargjöf og mér.
»
28.03.2008 18:54:58 / goodlive
Haldiði ekki bara að mín hafi farið í ræktina í morgun fór í Hress www.hress.is mér finnst einn galli við stöðina en lét mig samt hafa það það er að þegar maður er á þoltækjunum þá horfir maður á þá sem eru að lyfta og meðan maður púlar hugsar maður rosalega er þessi í flottum bol, rosalega er þessi með stóran rass eða mikið er þessi sæt jamm ég veit meira og minna allt stelpur 2 strákar voru nú líka í salnum í morgun ungir og sætir og ég hugsaði af hverju ætli þeir séu ekki að vinna humm en það að ég hafi hugsað svona segir kannski meira um mig en því miður er ég bara eins og annað fólk og þess vegna langar mig ekkert rosalega mikið að lyfta þarna því annars hugsar fókið sem er að hlaupa mikið er þessi feit ! eða mikið er hún í ljótum bol ! en kannski hugsar fólkið mikið er hún sæt þessi synd hvað hún er feit hehe æji þið skiljið mig en ég ætla ekki að látta þetta stoppa mig ákveðin í því. Svo ætla ég bara að fara í tíma þetta verður fínt. Ég var reyndar svo búin á því áðan eftir ræktina því miður ekki fyren allir voru komnir heim en ég lét eftir mér að leggjast og steinrotaðist úfff..
Jæja best að fara að baka og halda áfram að púla
»
26.03.2008 12:15:39 / goodlive
Orka óskast gefins eða fyrir lítið.
Ég er óttalega orkulaus og verkjuð þessa dagana ekki gott en ég ætla ekki að gefa eftir nú skal tekið á því hehe hversu oft hef ég skrifað þetta hér hehe ég er ömurleg á þessu sviði en vonanandi betri á öðrum. Alla vega nóg að gera næstu daga miðjubarnið mitt er að verða 7 ára á sunnudaginn og er því afmæli laugardag, sunnudag og mánudag já alltaf fjör. Ég kem mér enganveginn í að laga til og á fyrsta skipti síðan ég flutti að heiman er ég að jafn vel að athuga hvort mamma hafi orku í að aðstoða mig aðeins hér heima á föstudaginn en líklegra er að ég hvetji bóndan til þess að vera duglegan að hjálpa mér sem hann er nú alltaf þessi elska þarf bara að skipuleggja mig. Hvað á að baka ?? Þetta eru ca 20 manns á laugardag og svo 20 á sunnudag og svo stelpurnar úr bekknum á mánudag. Mig langar soltið að gera þessa 3 laga tertu úr nóa sirius bæklingnum hafi þið prufað hana ? Svo eina tertu í viðbót og svo heitan rétt er þetta ekki alveg nóg ??
munið svo að senda orkuna til mín
»
23.03.2008 23:47:16 / goodlive
»
23.03.2008 00:15:09 / goodlive
Gleðilega páska.. Hér er allt klárt búin að setja lærið í kryddlög og búin að fela páskaegginn. Mig hefur alltaf langað að gera ratleik fyrir krakkana en aldrei komið mér í það og kom mér því miður ekki í það þetta árið heldur. Ég faldi egginn fyrir þann elsta inni í þvottavélinni, næst elstu inni í herberginu hennar í dúkkustól og fyrir minsta skinnið sett ég undir tölvuborðið. Ég geri alveg eins ráð fyrir að þurfa að aðstoða þau í fyrramálið að leita.
hafið það gott kveðja Sirrý
»
20.03.2008 16:41:25 / goodlive
Gleðilega páska. Njótið frísins vel og borðið mikið af súkkulaði namm namm.. við ætlum að gera mest lítið og hvílast vel ..
»
15.03.2008 10:17:18 / goodlive
Ég er búin að vera að passa lítin sætan frænda alla vikuna og gengið bara vel. Elísa er rosalega ánægð með hann og knúsar hann og kjassar þegar við sækjum hana í leikskólan en svo þegar heim er komið má hann greyið ekki fá neitt dótt því hún á það allt hehe þau eru krútt.Við fjölskyldan fórum í páskabingó í leikskólanum í gær og fengum enginn verðlaun bara leiðinlegt eða það fannst krökkunum. Bestu vinkonur Tinnu systur fengu 3 vinninga og það allt svona stóra og flotta. Dagurinn í dag er óráðin þarf að fara með syninum og keyra út wc pappír og svo er ég með auga á vini hans foreldrar hans eru ekki heima og svo er ég að fara að passa í kvöld tvær frænkur mínar sem sagt nóg að gera hjá Sirrý supernany. Á morgun verð ég svo enn að passa skvísurnar svo það verður ekki mikið úr þessari helgi en það er stutt í páskana. Annars langar mig ferlega mikið á skíði þegar veðrið er svona gott og væri nú fjör að renna sér niður góða brekku í 20 ára fermingarskíðunum hehe og ekki væri það nú verra ef maður passaði líka í skíðagallan.
Annars hef ég verið að heyra af svona meka skvísum eins og mér sem hafa verið að skella sér á skíði á fermingargræjunum ein komin upp Kónginn og svo þegar hún ætlaði að fara að renna sér brotnuðu skíðaskórnir í sundur og skvísan varð bara að ganga niður á sokkunum. Önnur komin norður og komin í græjurnar og þessi passaði sko enn í flotta skíðagallan nema hvað hún ætlar að fara að renna sér þá brotna skórnir á sólanum og hún bara steig upp úr skíðunum en takði eftir því að ég hef bara heyrt svona sögur frá stelpum en ekki strákum og er staðan þá annað hvort sú að strákar séu bara ekki svona ofurhugar að þora að fara á skíði eða ofurhugarnir hafi bara sem er mun líklegra og það er að þeir hafi bara keypt sér nýjar græjur.
jæja ætla að fara að fá mér cocopufsshjómar það ekki vel ?
»
12.03.2008 07:57:53 / goodlive
Hún mamma mín á afmæli í dag svo ég segi bara innilega til hamingju með afmælið Mamma mín eigðu góðan dag.
»
11.03.2008 23:53:21 / goodlive
Fór með Arnar á læknavaktina í kvöld. Hann er allur í útbrotum en ekki með hita eða önnur einkenni. Konan sem var læknir skoðaði hann kíkti í munn ekkert að sjá þar og ekki eitlastækkun svo niður staðan var sú það er ekkert alvarlegt að honum humm sagði ég hvað er þá að honum humm 6 eða 7 veikinn kannski en sagðist svo ekki vita hvað það heiti á íslensku en þetta væri veiru sýking já sagði ég 5 veikin er það ekki til ? nei heyrðu bíddu sagði læknirinn kannski mislingabróðir ? og fór framm kom inn aftur og sagði æji þetta er veiki sem óléttar konur fá oft ert þú nokkuð ólétt sagði konan nei sagði ég og bætti svo við ætti ég kannski að láta hann gera þungunarpróf hún taldi að það væri óþarfi hjúkket maður segi ég nú bara hehe Ég spurði hvað við ættum að gera senda hann í skólan eða hvað ? Já endilega sagði læknirinn gott að hann smiti bara sem felsta best sko fyrir stelpur t.d að fá þetta sem fyrst og við værum að gera þeim greiða með að smita þær . Niðurstöður biðum í klukkutíma til að fá að vita að Arnar er með óléttu veiki sem enginn veit hvað heitir sagði mömmu vinar hans að við gætum ekki tekið ákvörðun vegna helgarinar fyren við vissum hvort fleiri óléttu einkenni kæmu í ljós. Þannig að ef einhver veit hvað þessi óléttu veiki heitir má endilega senda mér nafnið.
»
04.03.2008 07:54:50 / goodlive
Jæja það eru ekki góðar fréttir héðan viktin fór upp um 200 gr þessa viku Veit ekki hvað ég er að gera rangt ja nema að ég borðaði í gær og sleppti herba nema í morgunmat en ég borðaði ekki mikið. Verð að taka mig betur á var að spá hvort ég ætti að flytja viktunardaga yfir á föstudaga þá er ég búin að jafna mig betur eftir helgina ? Mér líður samt léttari en oft áður en ég er með soltið mikla verki í skrokknum í gær og í dag en vonandi líður það hjá.
»
|