One's you get fat it is hard to go back
Tenglar
RSS tengill
29.10.2009 01:23:37 / goodlive

Missir 3 viku

Jæja fór í viktun í kvöld og misti 1,9 kg
ÉG stóð í stað í síðustu viku en missir í heildina á 3 vikum er 5,4 kg meðaltali 1,8 kg á viku eða 260 gr á dag.
Og ég held að það sé rétt reiknað að ég verð þá 115 daga að ná af mér 30 kg sem eru 4 mánuðir.
Verður spennandi að vita hvort mér takist að halda þetta út svona ? þá væri ég orðin flott í febrúar.
haha smá pælingar

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 21:56:07 / goodlive

Missir vikunnar

Jæja, ég var að koma úr viktun en fyrst vill ég segja ykkur hvað ég var að gera,
Ég hef aukið vatnsdrykkju mjög mikið, drukkið ávaxtabúst með engifer.

Ég hef borðað hafragraut í morgunmat, grænmeti og ávexti í milli mál eiginlega bara þegar ég er svön 1 til tveggja tíma fresti, í hádeginu hef ég borðað grænmeti, rúllu frá móður náttúru, beikon og egg.
á kvöldin hef ég borða, hamborgara sleppt öðru brauðinu, pottrétt og sallat, pizzu með grænmeti, kjúkling og grænmeti, heimagerða roostbeef samloku Sleppti öllu nammi nema á laugardaginn fékk ég mér smá, sleppti öllu gosi, öllum kartöflum, og næstum öllu brauði.

Þarf að koma meira próteini inn í matinn og eins og þið sjáið borðaði ég aldrei fisk þessa viku en það verður bætt úr því í þessari viku.

já og þá er það aðalatriðið ég misti hladið ykkur fast 3,6 kg.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 09:09:03 / goodlive

Veik eða ekki veik

Að vera eða að vera ekki veikur það er stóra spurningin.
Elísa veiktist á sunnudag með öll einkenni svinaflensu, Baddi var heima á mánudag og ég kom svo veik heim eftir bónusferð á mánudeginum. var heima í gær með henni en ég var frekar furðuleg, með hita ekki með hita, slöpp, ekki slöpp.
Elísa var mjög veik á mánudaginn og svaf allan daginn eða svo til en í gær var hún nokkuð hress með hita í kringum 38,3 hún hóstaði mjög lítið í gær þangað til að hún var sofnuð, þá fór hún að hósta og svitna og það mikið að fötinn hennar urðu rennandi. Ég gaf henni hósta stillandi og það virkaði. Ég mældi hana og hún var hitalaus.
Ég hef ekki mælt hana í morgun en mér fannst eins og hún væri með alla vega einhverjar kommur. mæli hana seinna í dag þegar líkaminn er komin í fullt gang.

 

Svo er viktunin í kvöld, soltið spennandi.set kannski inn tölu á morgun


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2009 11:24:28 / goodlive

Núna hef lífið tekið smá breytingum

Já já haldiði ekki bara að mín hafi mætt í ræktina og að auki skráð sig í þyngdarlosunar keppni já já og ég ætla að vinna hana.
Núna verður maðru bara endalaust leiðinlegur og algjörlega edrú í þokkabót.

Ég stefni á að borða hafragraut í morgunmat, sallat í hádeginu og venjulegan kvöldmat, ávexti þess á milli.
Vanar samt soltið prótín með þessu ðllu.

ef þið hafið tips endilega látið mig vita.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2009 00:34:34 / goodlive

Lifið heldur áfram

Lífið henldur áfram sinn vana gang, reyndar líður hann allt of hratt, nú er snjór í fjöllum og hitin komin niður fyrir frosmark og ég enn í sumarskapi, stend allt í einu uppi ógeðslega kallt og þá fer ég að hugsa hey það er komin okt og kannski komin tími til að klæða sig í eitthvað meira en stuttermabol og buxur er jafn vel sokkalaus ekki alveg í lagi.
Við famelían erum búin að hafa það rosalega gott, maður er alltaf að þykjast vera að læra og hef svo sem lítið annað gert.
Fórum í dag á krepputorg stelpurnar fóru í krakkahöllina og vá hvað þær voru glaðar með það, kíktum í Ilvu flott búð en soltið dýr finnst mér.
Í kvöld var 20 ára reunion og ég bara nennti ekki að fara, á ekki við mig að djamma 3 helgar í röð og voru síðustu tvær alveg nóg.
Ég fór með bóndanum í bíó í staðin á myndi serogates ( held það sé skrifað svona) mæli ekki neitt sérstaklega með henni en hún var í lagi, ég hafði fengið boðsmiða annars hefði ég valið aðra mynd.

Ég er að fara í afmæli á morgun til fallegustu frænku minnar hennar Katrínar pæju, keypti flotta afmælisgjöf sem ég vona að skvísan fíli, ekki auðvelt að kaupa handa 14 ára gellu en ákvað að þrjóskast við langaði ekki að gefa henni pening.

jæja best að fara að sofa það eru fimleikar á morgun.


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 44844
Myndasöfn