13.03.2009 22:20:23 / goodlive
Voðalega er veðrið kósý eitthvað alla vega ef maður þarf ekki að fara neitt út.
Ég er búin að vera rosalega dugleg í skólanum nóg að gera þessa dagana en ég hef ekki verið að læra eins mikið og fyrir áramót.
Það hefur lítið gerst hjá famelíunni Mamma varð 60 ára í gær og var svaka partý með góðum mat umm bara gaman enda mamma svo frábær og flott.
Það er árshátíð Nýherja á morgun. Ég er hálf slöpp svo ég nenni ekki að hafa mig neitt mikið til fyrir þetta en ætla samt að fara með karlinum.
Árshátíð Keilis var í kvöld ég nennti ekki að fara sem betur fer því ég hefði líklega ekki keyrt heim í þessu veðri.
Jæja bara að láta heyra í mér
kveðja Sirrý
»